Nei
20.11.2006 22:13:14 / lana

Jæja

Ætli maður byrji ekki að blogga aftur. Allt gott að frétta úr háskólalífinu ég er alveg að stúdera íslenskuna á fullu. Stúdentaleikhúsið er mjög skemmtilegt. Vá og eigum við að ræða að Fríða og Barbara eru fyndnustu manneskjur í veröldinni!! Þar til næst.... Bæ.

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 01:14:49 / lana

Raunasaga blekhylkisins

Ég er þjáð... Mig vantar karlmann í líf mitt núna til að kippa hlutunum í lag.

Ég vil fara að sofa en ég get það ekki...

Ég þarf að klára það sem ég var byrjuð á!

Ég er pirruð...

..............................................................................................................

ÉG GET EKKI SKIPT UM BLEKHYLKI Í PRENTARANUM!!!!

...............................................................................................................

Nú gætu sumir sagt:

  • "Þegiðu Lana, reyndu bara"
  • "Æ Lana, fáðu bara einhvern til að segja þér til!"
  • "Dísess fokking kræst mar, í guðanna bænum drullastu til að skipta um fokking blekhylki!" (gúmmítöffari)
  • "Lestu leiðbeiningarnar kelling."

Málið er að ég hef prófað alla þessa valkosti. Hann Steini góðvinur minn hefur fylgt mér í gegnum ferlið og alltaf koma upp einhverjar hindranir.

Bráðum gefst ég upp og fátt er verra í þessum heimi en uppgjafir....

Kv. Tilvonandi formaður þjáða félagsins


» 14 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 18:04:15 / lana

Update from Florida

Veður: Heitt án þess að vera rakt. Sólskin en þó hálfskýjað í dag. 20-30 stiga hiti.

Hreyfing: Línuskautar, skokk, TRAMPÓLÍN, tennis, sund.

Lesefni: Stærðfræðibókin sinnepsgula, Mannkynssaga 1 og 2.

Innkaup: 7 bolir, 2 kjólar, 2 pör af skóm, sólgleraugu og fleiri smáhlutir.

Matur: Beyglur með rjómaosti, kjúklingur í alls kyns myndum, ferskir og gómsætir ávextir í miklu magni.

Sólböð: Ekki mikið um það í þetta skiptið. Því miður.

Karlmenn: Ekki mikið um álitlega karlmenn hérna í þetta skiptið. Þeir eru allavega faldir einhvers staðar. Fyrir utan Arnar Gauta brósa auðvitað. Hann er heitur gaur.

Annars er þetta sældarlíf hérna í letilandinu. Hlakka virkilega til þess að koma hingað með vinkonum eða jafnvel tilvonandi kærasta sem ég er að fara að eignast.

Goodbye.


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 20:35:19 / lana

Ætli það ekki...

Síðasti skóladagurinn á morgun. Mér finnst það merkilegt.

Ég er að gera verkefni um stjörnuspeki fyrir Málefni líðandi stundar. Kallið mig klikkaða en mér finnst það virkilega skemmtilegt.

Helga Lóa vann því miður ekki kosningarnar. En við leggjumst ekki í þunglyndi yfir því. Ég verð þó að viðurkenna að ég bað móður mína margoft um að stinga rýting í bakið á mér síðustu helgi.

Eftir prófin býst ég við skemmtilegum tíma. Ég og Helga Lóa höfum ákveðið að eyða tímanum frá próflokum og fram að útskriftarferð á svipaðan hátt og við eyddum jólafríinu. Þetta jólafrí var of skemmtilegt!

P.s. Afsakið leiðinlega færslu. Ég er leiðinleg. Nei í alvörunni, ég veit það alveg. Ég er rosalega leiðinleg manneskja og mér finnst það ekkert skemmtilegt. Ekki samt hata mig út af því. Plís.


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 13:01:54 / lana

Hlóa

Nú er fyrsti dagur kosningavikunnar. Fullt af nammi og öðru góðgæti. Ég vil bara minna á eitt sem þarf þó vart að segja:

Setjum X við Helgu Lóu í formann Listó


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 23:56:39 / lana

Líf og fræði og list.

Klukkan nálgast miðnætti. Nýr dagur byrjar senn. Skemmtilegur dagur. Föstudagur.

Önnur lota athugasemdakeppninnar fór af stað strax og úrslit úr fyrstu lotu komu í ljós. Ég ætla að tilkynna næsta vinningshafa um helgina. Þið verðið bara að bíða spennt. Allur þessi fjöldi sem heimsækir síðuna mína..hahahaha

Seinasta skyndiprófið mitt í Verzlunarskólanum er á morgun. Líffræði. Ég er eiginlega ekkert byrjuð að læra. Af hverju ekki?

Svar óskast.

Afsakið leiðinlega bloggfærslu. Ég tek þetta á mig. Er í svolítið skrýtnu skapi þessa dagana. Leiðist skólinn alveg rosalega. Ekkert endilega námið. Er bara komin með virkilegt ógeð af umhverfinu. Hlakka til að prófa eitthvað nýtt.

Florida Florida Florida. Ohh það verður indælt að komast út. Hugsa til sólarinnar og hlýjunnar oft á dag. Þó að þetta verði lærdómsferð.

Kosningavikan í næstu viku. Ég er búin að lofa að meiða sjálfa mig ef Helga Lóa vinnur ekki. Þarf ekkert að óttast. Að sjálfsögðu vinnur hún!


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:34:37 / lana

Athugasemdakeppni - Nr.1

17.03.2006 23:46:01     »    Björk »
Björk skrifaði
Laaaaaaana... minn einasti þýskufélgi.. ég elska þessa síðu þar sem hún fæddist í tengslum við þýskaland... jájaja´´aá.... ja bitte mmmmmmm.... hahahah... þú hlærð...

"ég ætla að fá mér bjór... neiiiii björk.. vá hvað þú ert breytt en samt ekki breytt.. búin að fríkka.. vá stundum er ég of hreinskilin... " sagt þann 17. mars 2006 kl. 23:45 þegar Lana sá fermingarmynd af Björk

Helga Lóa er næsti formaður listó, við skulum alveg hafa það á hreinu! ;)

Björk vann sem sagt fyrstu lotu athugasemdakeppninnar. Ég hló mikið þegar ég las þessa athugasemd sem hún skrifaði á laugardagskvöldið.

Annars var alveg yndislegt að hitta hana og Klöru um helgina. Gaman að þessum útlendingum;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 21:06:46 / lana

Frænkukynning

Hún Birna Rún frænka mín er alveg óborganleg. Hér sjáið þið smá sýnishorn:
Brownie ..reyna að gera eitthvað af viti] says:
Lana í rekstri er dýr
Aldrei sami gaurinn, alltaf einhver nýr
Algjör prímadonnu mey.
Hættu þessari afneitun.. þú ert gay!
iiii… sakna þín (bara smá) pandabjörninn þinn!! Og farðu síðan að blogga ó þú virðulegi og dramatíski augnblýantur.
Það sem við lærðum af þessu sýnishorni: Birna er sérstök, ef ég væri hlutur þá væri ég svartur augnblýantur og síðast en ekki síst...ég er gay?
Mig langar samt til þess að þið veltið þessu fyrir ykkur. Hugsið um fólkið í kringum ykkur. Hvaða hlutur er sá fyrsti sem ykkur dettur í hug þegar þið hugsið um einhverja tiltekna manneskju? Virkilega skemmtileg pæling sem má útfæra á ýmsan hátt.

Bið að heilsa.

 

» 10 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 21:15:50 / lana

Kannski

Ég er mætt aftur til leiks...eða...kannski ekki til leiks heldur til skrifa...eða eitthvað svoleiðis.

Sumum finnst það kannski neikvætt að hafa titilinn á síðunni sinni: Nei. Þetta fólk getur bara farið í rassgat. Ég er sko ekkert neikvæð. Heitið á vefsíðunni minni er m.a.s. Já. Ég er bara að fara hinn gullna milliveg. Lífið er í hæðum og lægðum. Ég er bara að minna ykkur á það gott fólk.

Annars verð ég að lýsa yfir ánægju minni með metnaðinn í leikfimitímum stúlkna Verzlunarskólans. Stúlkur eru að keyra sig út og jafnvel að æla úr sér innyflunum eftir tímatökur, því þeim er svo mikið í mun að fá 10 í einkunn. Ég er ánægð með þetta og finnst þetta góð hvatning. Ég hugsa til dæmis alveg: “Fokk, það er tímataka bráðlega. Ég verð að bæta þolið mitt.” Þó það sé kannski ekkert það sniðugt að fara í útihlaup í roki og rigningu þegar maður er með kvef og hálsbólgu. Heimska Lana.

Ljósið á fimmtudaginn. Allir voða hressir og spenntir. Heyrst hefur að myndin ‘Öfugu megin’ muni fara á kostum. Sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Ég er farin. Ætla að loka mig inni í herberginu mínu. Leggjast undir sængina. Hækka tónlistina í botn og grenja af lífs og sálar kröftum. Hvernig væri það? Gangi mér vel....


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 20:43:06 / lana

Og síðan hittumst við aftur á miðri leið

Heil og sæl dyggu lesendur...

Mér datt allt í einu í hug að byrja aftur í blogginu...lofa engu en mig langar aðeins til að hressa upp á þessa síðu.

Síðan ég kom heim frá Þýskalandi (fyrir tæpum 2 árum) hefur margt drifið á daga mína.

Ég hef elst um næstum því 2 ár. Ég  hef klárað 5.bekk og megnið af 6.bekk í Verzló. Ég hef farið nokkrum sinnum í klippingu, tekið spólu nokkrum sinnum, farið út á lífið nokkrum sinnum, kynnst nokkrum nýjum vinum, farið í sturtu nokkrum sinnum og lengi mætti áfram telja.

Eins og þið vitið þá er ég stelpa. Stelpa sem kynntist lífinu fyrir rúmlega 19 árum. Þekkir það ágætlega núna en mun þó vonandi kynnast því miklu betur á komandi árum.

Nú kveð ég að sinni...en ég mun koma aftur. Ekki örvænta. Þetta er aðeins inngangurinn.

Verið sæl.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2004 21:04:39 / lana

Banana´s

Jæja jæja.. Þá er maður kominn til landsins..alltaf gaman að koma heim þó að seinasta vikan hafi bara verið alveg stórskemmtileg! Ég og Hrólfur fundum okkur alltaf eitthvað sniðugt að gera og tókum lokaprófið með trompi! Seinasta kvöldið skelltum við okkur að sjálfsögðu á Repeerbahn sem er gata með öllum aðal skemmtistöðunum. Þýðir ekkert annað. En ég er sem sagt hætt þessari vitleysu (blogginu) núna! Auf wiedersehen!

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2004 15:22:09 / lana

Autobahn!!

Komid nu heil og sael!

Langt hefur lidid fra thvi sidast..t.d. islandsförin mikla sem var alveg hreint yndislega skemmtileg!

En sidan eg kom hingad aftur hefur bara verid alveg frabaert! Eg er buin ad fara i bio a Harry Potter med Joninu (myndin var a thysku svo eg er mjög stolt), i gaer for eg sidan i mat til fjölskyldunnar og deginum i dag eyddi eg a stad sem heitir Timmendorfen Strand. Smabaer i klukkustundar ökuleid fra Hamborg. For eg thangad med Joninu og Helga og skemmti mer vel.

Vedrid hefur tekid stakkaskiptum thessa sidustu viku og i dag var glampandi sol! Ad sjalfsögdu er eg himinlifandi thvi tha er sma glaeta ad eg nai einhverjum lit herna. Er thad ekki annars alltaf takmarkid thegar Islendingur fer til utlanda? Versla sem mest og koma sem dekkstur heim?

Svo er hann Hrolfur Sördal vist ad koma i dag. Hann aetlar ad vera herna i manud og er alveg yfir sig spenntur. Getur ekki bedid eftir ad hitta fjölskylduna sem hann mun bua hja ;) Mjög gaman ad thvi!

Eins og thid sjaid hefur aldeilis raest ur thessari svartsyni sem gerdi vart vid sig i byrjun ferdar! Eg er farin ad hafa reglulega gaman ad thessu öllu saman. Held ad astaedan se ad thessi stadur gaeti ekki verid olikari Kopaskeri (hmhm Sara Dis) :haha:

Med kvedju,

Lana Potter


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2004 14:10:39 / lana

Islendingafundur!!

Godan og blessadan daginn.

För min er nu alltaf ad verda skemmtilegri og skemmtilegri. I fyrsta lagi tha venst madur einverunni mjög vel og i ödru lagi tha var mer bodid i mat i gaer til Islendinga sem bua her i Hamborg.

Thetta eru hjon sem hafa buid herna i 19 ar og dottirin Jonina (17 ara) og sonurinn Helgi (25 ara). Thad var bara alveg otrulega gaman, fekk loksins eitthvad almennilegt ad borda og stelpan og strakurinn eru mjög skemmtileg! Tala m.a.s. islensku!!:P

Strakurinn skutladi mer heim um kvöldid og syndi mer i leidinni alls konar stadi sem er gott ad borda og lika skemmtistadina. Vid forum m.a. og skodudum svona strandbar. Hann var vid höfnina og buid var ad setja svona strandarsand og alls konar, ekkert sma flott. Sidan baud hann mer ad koma med ser ut a lifid e-n timann a medan eg vaeri herna og gaf mer nafnspjaldid sitt 8) Svalur gaur eda hvad??

Folkid var ad missa sig i almennilegheitum og hafdi hrikalegar ahyggjur af thvi ad thad vaeri enginn isskapur eda neitt a herberginu minu!! Aetludu m.a.s. ad lata mig fa einhvern ferdaisskap sem strakurinn a..jiminn eini..ekki gat eg nu thegid thad!

Sidan flyg eg bara nach Island i morgen!! Hlakka roooosalega mikid til!! Eins gott ad eg komist med velinni til Kaupmannahafnar...eg er med tryggt flugstjornarklefasaeti i velinni til Islands en eg veit ekkert med hitt flugid...vid vonum thad besta :!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2004 14:13:59 / lana

Aaaaaaaaaaaaaaa!!!!!!!!!!!????!!!!!

Nu skal eg segja ykkur sögu.

I gaer kom rigning svo eg var bara uppa herbergi seinni part dags. Herbergisfelagi minn einnig. Vid tölum nanast ekkert saman. Erum eitthvad sma bunar ad reyna thad en vid skiljum ekkert hvor adra..segjum bara: Ja...eda...ich verstehe nicht! mjög skondid thad!

Eg var bara ad lesa min megin i herberginu og var ekkert ad fylgjast med henni en thegar eg leit upp og for ad gera mig tilbuna til ad fara ut ad hlaupa tha sat hun i mestu makindum i G-streng einum klaeda vid bordid og var ad lesa!!!!! Mer bra allsvakalega en let ekki a neinu bera og dreif mig ut ad vidra steiktan heila. Thegar eg kom aftur hefdi madur nu haldid ad hun vaeri komin i föt en NEI NEI! Hun var reyndar komin i brjosthaldara (gudi se lof) en ekkert annad og heilsadi mer bara eins og ekkert vaeri. Sögunni er ekki lokid thvi eg for ad laera minum megin i herberginu og tha tharf hun alltaf ad koma og grandskoda HANDARKRIKANN SINN i speglinum sem er vid hlidina a stadnum sem eg sat. Hun hefdi alveg getad skodad sig i speglinum sem var hja henni...en NEI NEI...minn er staerri og eflaust thess vegna vard hun ad fremja thennan storkostlega verknad vid hlidina a mer!!

Og nu spyr eg eins og saklaust barn modur sina: ER THETTA EDLILEGT???? (einhverjir veraldarvanir menn vinsamlegast svari)

En annars er nu bara allt gott ad fretta! Er buin ad eiga notalegan dag i gardinum ad lesa og sola mig! Og svo er baerinn fullur af utimörkudum! Dyrka svoleidis thannig ad eg hef i nogu ad snuast i dag :haha:


» 83 hafa sagt sína skoðun

22.05.2004 13:41:49 / lana

Krossgatur eru skemmtilegar

Godan og blessadan daginn!

Her sit eg hress a colonnade internet cafe!

Ja...eg hef frettir! Thessi blessada tekkneska stulka (hun heitir vist Nazdia) kom i gaer! Og gud minn almattugur. Ekki list mer a kellu. Eg veit ekki hvort eg se svona fordomafull eda hvad en mig langar ekkert ad kynnast henni. Hun er eins og tannstöngull i laginu, med risastor gleraugu, litur ut fyrir ad vera svona 37 og rusinan i pylsuendanum: Talar enga ensku! Bara sma thysku! Hvernig i andskotanum eigum vid tha ad tala saman?? En thetta er samt allt i lagi..mer finnst eiginlega bara betra ad vera ein.

Thad er ogedslegur matur herna!! An grins! I gaer vaknadi eg of seint til ad geta bordad morgunmat og var ordin mjög svöng eftir skola (kl.1) svo eg for i bakari herna rett hja. Kom auga a salat i boxi og hugsadi: Hey, thetta hlytur nu ad vera alveg safe. Svo eg keypti mer thad og for uppa herbergi til ad borda. Nei nei..tha var eitthvad ogedslega surt bragd af thessu svo eg gat ekki bordad. For tha ad labba i baenum og sa svona bagle-house svokallad. For thangad og pantadi mer med kjukling og graenmeti. Nei nei..tha var thad einhver ogedsleg kassa svo eg sat eins og faviti a veitingahusi og kroppadi thar sem eg fann hreint braud! :haha:

Er buin ad sökkva mer ofani Atomstödina og thad er snilldarbok!

....Reyndar fyndist mer örugglega allar baekur skemmtilegar nuna en allavega...

Auf wiedersehen!


» 75 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2